Friday, September 19, 2003

Sérann er lasinn. Um það hefur aldrei verið neinum blöðum að fletta. Þegar sérann á kvað nú í maí að rækta athyglisbrestinn með því að hefja blogg þufti að velja nafn á síðuna. Fannst séranum fyndið (mjög umdeilt) að nefna hana ulofpalme.blogspot.com Þarna er glens á ferð, það er ekki spurningin. En í ljósi nýjustu atburða var ákveðið að ná sér í nýtt blogg, nefnilega annalindh.blogspot.com Sökum þess hve stutt er síðan þessi hörmulegi atburður átti sér stað er ósmekklegt að skrifa nokkuð hér. Þessvegna hafa verið hér settar inn fréttir af mbl.is og munu þær standa hér

Erlent| AP | 19.9.2003 | 11:53
1.300 viðstaddir minningarathöfn um Önnu Lindh
Miklar öryggisráðstafanir voru viðhafðar í morgun þegar háttsettir embættismenn víðs vegar að úr heiminum vottuðu Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hinstu virðingu sína í sérstakri minningarathöfn í ráðhúsinu í Stokkhólmi. Lindh var stunginn nokkrum sinnum með hnífi þar sem hún var stödd í verslun 10. september sl. og lést af sárum sínum morguninn eftir.
Meira


Erlent| 19.9.2003 | 08:55
Svíþjóð: Krafist framlengingar á gæsluvarðhaldi
Ríkissaksóknari í Svíþjóð fór í morgun fram á að framlengt yrði gæsluvarðhald yfir Per Olaf Svensson, 35 ára gömlum Svía sem er í haldi lögreglu í Stokkhólmi vegna rannsóknar á morði á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Lögregla, sem hafði látið framkvæma DNA-rannsókn vegna málsins, hafði frest fram til klukkan 10 í dag að íslenskum tíma til þess að leggja fram sönnunargögn fyrir ríkissaksóknara. Dómari á eftir að taka afstöðu til gæsluvarðhaldskröfunnar.
Meira


Erlent| 19.9.2003 | 06:34
Svíþjóð: Niðurstaða úr DNA-rannsókn enn óbirt
Opinber minningarathöfn fer fram um Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, í Stokkhólmi klukkan 9 í dag. Búist er við um 1.300 gestum frá fjölmörgum löndum. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hugðist vera viðstaddur, en hefur tilkynnt forföll þar sem flug er stopult vegna fellibyljarins Isabel. Mikill viðbúnaður verður í Stokkhólmi vegna minningarathafnarinnar. Lögregla Stokkhólmi hefur enn ekki upplýst um niðurstöður DNA-rannsóknar, sem var framkvæmd vegna málsins.
Meira


Erlent| 18.9.2003 | 14:52
Lögregla upplýsir ekki strax um niðurstöður DNA-rannsóknar
Búið er að rannsaka lífssýni úr manni, sem handtekinn var í fyrrakvöld grunaður um morðið á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svía, og bera þau saman við lífssýni sem fundust á morðvopninu og húfu sem morðinginn er talinn hafa kastað frá sér á flóttanum. Lögregla í Svíþjóð vill ekki upplýsa hvort sýnunum ber saman en saksóknari hefur frest til hádegis á morgun að leggja fram formlega ákæru á hendur manninum og jafnframt krefjast gæsluvarðhalds.
Meira


Erlent| AP | 18.9.2003 | 14:12
Flug yfir miðborg Stokkhólms bannað á meðan á minningarathöfn stendur
Mikil öryggisgæsla verður á meðan á minningarathöfn um Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, stendur á morgun. Allt flug yfir miðborgina verður bannað og skipaskurði í nágrenni ráðhússins, þar sem athöfnin fer fram, verður lokað fyrir umferð. Um 1.300 manns hefur verið boðið til athafnarinnar þar á meðal nokkrum fulltrúum erlendra ríkisstjórna. Búist hafði verið við nærveru Colins Powells, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, en hann afboðaði í dag vegna þeirrar ógnar sem Washington stafar af fellibylnum Isabel.
Meira


Erlent| 18.9.2003 | 10:01
Halldór, Siv og Svavar sækja minningarathöfn um Önnu Lindh
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, Svavar Gestsson sendiherra og Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra verða viðstödd fyrir hönd íslenskra stjórnvalda minningarathöfn á morgun um Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sem lést eftir árás í verslunarmiðstöð í Stokkhólmi í síðustu viku. Saksóknari í Svíþjóð hefur frest til kl. 12 að sænskum tíma á morgun til að úrskurða 35 ára karlmann sem hefur verið í haldi lögreglu í frekara gæsluvarðhald ellegar láta hann lausan. Maðurinn neitar sök. Sænska lögreglan hefur boðað til blaðamannafundar kl. 15 í dag.
Meira


Erlent| 18.9.2003 | 06:36
Svíþjóð: Von er á niðurstöðum DNA-rannsóknar í dag
Von er á niðurstöðum úr DNA-rannsókn á lífssýni á derhúfu sem morðingi Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, er talinn hafa notað þegar morðið var framið, að sögn Aftonbladet. 35 ára karlmaður, sem er grunaður um morðið, er í haldi lögreglu. Mikil gæsla er í kringum hinn grunaða, en fylgst er með honum allan sólarhringinn á meðan hann er í gæsluvarðhaldi til þess að koma í veg fyrir að hann geti mögulega framið sjálfsmorð. Lögregla segir að hinn grunaði sé ekki sá eini sem geti tengst rannsókn málsins. Anna Lindh verður borin til grafar á laugardag.
Meira


Erlent| AFP | 17.9.2003 | 16:33
Maður sem handtekinn var í gær sagður hafa neitað sakargiftum
Sænska ríkisútvarpið sagði í dag, að maður sem handtekinn var í gærkvöldi í Stokkhólmi, grunaður um morðið á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hafi sagt í yfirheyrslum í gærkvöldi að hann hefði ekki myrt ráðherrann. Maðurinn gat þó ekki gert grein fyrir ferðum sínum daginn sem ráðist var á Lindh í verslunarmiðstöð í miðborg Stokkhólms. Lögregla hefur í dag aflað gagna í tengslum við málið, m.a. með húsleitum á nokkrum stöðum í og við borgina. Þá vonast lögreglan til að samanburður á lífssýnum úr manninum og sýnum sem fundust á morðvopninu og húfu sem morðinginn kastaði frá sér á flóttanum, veiti óyggjandi niðurstöðu.
Meira


Erlent| 17.9.2003 | 13:24
Villepin verður viðstaddur minningarathöfn um Önnu Lindh
Dominique de Villepin, utanríkisráðherra Frakklands, ætlar að vera viðstaddur minningarathöfn um Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sem lést 11. september. Um eitt þúsund manns verður boðið til minningarathafnarinnar á föstudag. Búið er að skipa meintum morðingja Önnu Lindh verjanda.
Meira


Erlent| 17.9.2003 | 06:44
Lögregla rannsakar DNA úr meintum morðingja Önnu Lindh
Lögreglan í Stokkhólmi sagði í gærkvöldi að meintur morðingi Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefði ekki haft neinar augljósar ástæður út frá stjórnmálaskoðunum til þess að fremja ódæðið. Meintur morðingi Lindh er í haldi lögreglu, en hann var tekinn höndum við Raasunda-leikvanginn í Solna á Stokkhólmssvæðinu um níuleytið í gærkvöldi. Hann var óvopnaður og veitti ekki mótspyrnu við handtöku. Sænskir fjölmiðlar hafa haldið því fram að maðurinn hafi tengst hægriöfgamönnum þar í landi, meðal annars var sagt að hann væri einn af alræmdustu nýnasistum í Svíþjóð.
Meira


Erlent| AFP | 16.9.2003 | 22:19
Colin Powell viðstaddur minningarathöfn um Lindh
Í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneytinu bandaríska mun Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, verða við minningarathöfn um Önnu Lindh utanríkisráðherra Svíþjóðar, nk. föstudag. Powell mun fara frá Washington seint á fimmtudag og snúa aftur heim strax að athöfn lokinni á föstudag.
Meira


Erlent| 16.9.2003 | 19:37
Búið að handtaka hinn eftirlýsta
Að sögn Dagens Nyheter er búið að handtaka manninn sem grunaður er um morðið á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Maðurinn var handtekinn, að sögn Kurt-Erik Hansson hjá lögreglunni í Stokkhólmi, á veitingastað utan við Råsunda-leikvanginn í Solna meðan á leik Djurgården og Hammarby stóð í sænsku knattspyrnunni. Solna er bæjarfélag innan marka Stokkhólms. Var maðurinn, sem var óvopnaður við handtökuna, fluttur á Kronobergs-lögreglustöðina til yfirheyrslu.
Meira


Erlent| 16.9.2003 | 17:07
Hinn handtekni þekktur hægriöfgamaður
Á fréttavef Aftonbladet segir að sá sem handtekinn var í dag vegna rannsóknarinnar á morðinu á Önnu Lindh utanríkisráðherra Svíþjóðar, sé 35 ára karlmaður sem m.a. tilheyri öfgahægrisamtökum og sé í slagtogi við þekkta nýnasista.
Meira


Erlent| 16.9.2003 | 16:28
Lögregla staðfestir handtökuskipun
Agnetha Styrwoldt-Alfheim, upplýsingastjóri sænsku lögreglunnar, hefur staðfest að gefin hafi verið út handtökuskipun á hendur ákveðnum manni í tengslum við rannsókn morðsins á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Reutersfréttastofan hefur eftir Styrwoldt-Alfheim að nægar grunsemdir liggi fyrir um að umræddur maður hafi framið morð. Sænskir fjölmiðlar fullyrtu fyrr í dag að svonefndur NK-maður, sem myndir náðust af skömmu áður en Lindh var myrt, hefði verið handtekinn í morgun en lögreglan bar það til baka og vildi heldur ekki staðfesta að gefin hefði verið út handtökuskipun. Þá hefur lögregla heldur ekki viljað upplýsa hvort einhver hafi verið færður til yfirheyrslu í dag.
Meira


Erlent| AP | 16.9.2003 | 14:14
Sænska þingið sett í skugga morðsins á Lindh
Sænska þingið var sett í dag og setti fráfall Önnu Lindh, utanríkisráðherra, mikinn svip á setningarathöfnina. Göran Persson, forsætisráðherra sagði, að fyrir fimm dögum hefði Svíþjóð orðið fyrir miklu áfalli þegar utanríkisráðherra þjóðarinnar var myrtur. Hann sagði að hugsjónum Lindh um jafnrétti og lýðræði yrði haldið á lofti.
Meira


Erlent| 16.9.2003 | 13:30
Segja rannsókn á morði Lindh á mjög viðkvæmu stigi
Lögreglan í Svíþjóð vildi á blaðamannafundi síðdegis ekki staðfesta fréttir um að maður hefði verið handtekinn í tengslum við rannsókn á morðinu á Önnu Lindh, utanríkisráðherra. Stina Wessling, talsmaður lögreglunnar, sagði á blaðamannafundinum að enginn hefði verið handtekinn. „Lögreglurannsóknin er á mjög viðkvæmu stigi," sagði Wessling og bætti við að hún vildi ekki tjá sig um stöðu mála. „Rannsókninni vindur stöðugt fram. Við höfum fengið mjög áhugaverðar upplýsingar sem við vinnum út frá. Nýjar upplýsingar berast stöðugt."
Meira


Erlent| 16.9.2003 | 13:08
Upplýsingar um NK-manninn bentu eindregið á ákveðinn mann
Sænska blaðið Expressen segir á fréttavef sínum að lögregla hafi í gær fengið upplýsingar, bæði frá vitnum og með öðrum hætti, sem bentu eindregið til að ákveðinn maður væri sá sem myndir hafa að undanförnu birst af og teknar voru úr öryggismyndavélum í verslunarmiðstöðinni NK í Stokkhólmi. Var mannsins leitað í gær og nótt en án árangurs. Klukkan 11:30 í morgun að sænskum tíma hafi lögreglan síðan upplýsingar um hvar maðurinn hélt sig, handtekið hann og fært til yfirheyrslu. Einnig hafi vinkona mannsins verið færð til yfirheyrslu.
Meira


Erlent| 16.9.2003 | 11:38
Maðurinn á myndunum sagður handtekinn í Stokkhólmi
Lögreglan í Stokkhólmi hefur handtekið mann, sem talið er að myndir úr öryggismyndavélum verslunarmiðstöðvarinnar NK séu af. Víðtæk leit hefur farið fram að manninum síðustu daga og segir blaðið Expressen á fréttavef sínum að lögreglan hafi handtekið hann um hádegisbil að sænskum tíma. Hefur blaðið eftir heimildarmanni innan lögreglunnar, að allt bendi til að um sé að ræða manninn á myndunum og sé hann morðingi Önnu Lindh, utanríkisráðherra, muni lögreglunni takast að færa á það sönnur. Sænska sjónvarpsstöðin TV4 segir að háttsettir menn innan lögreglunnar hafi staðfest þessar fréttir en nafngreindir talsmenn lögreglunnar hafa ekki viljað staðfesta þær og segja að enginn hafi verið handtekinn. Lögreglan hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 13 að íslenskum tíma.
Meira


Erlent| 16.9.2003 | 11:24
Lífssýni úr morðingjanum fundust á morðvopninu
Lögregla í Svíþjóð hefur fundið lífssýni á hnífnum, sem óþekktur karlmaður notaði til að myrða Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar í síðustu viku. Í gær staðfesti lögreglan að lífssýni hefðu fundist á húfu, sem talið er að morðinginn hafi kastað frá sér utan við verslunarmiðstöðina þar sem ódæðið var framið. Gert er ráð fyrir ljúki lögreglan við að gera sálfræðilega lýsingu á ódæðismanninum.
Meira


Erlent| 16.9.2003 | 07:42
Segja morð Önnu Lindh líkt öðru ofbeldismáli
Sænska ríkislögreglan segir að morðið á Önnu Lindh sé líkt öðru ofbeldismáli sem kom upp í Svíþjóð fyrir nokkrum misserum. Fram kemur á fréttavef Aftonbladet, að sérstök deild ríkislögreglustjórans, sem nefnd er Viclas, hafi að undanförnu rannsakað skýrslur og komist að þessari niðurstöðu. Jan-Eric Ahlskog, einn af yfirmönnum umræddrar deildar, staðfestir þetta en vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Meira


Erlent| Morgunblaðið | 16.9.2003 | 05:30
Leitin að morðingja Önnu Lindh: Lögreglan vongóð
Búið er að yfirheyra nokkurn hóp fólks í tengslum við morðið á utanríkisráðherra Svíþjóðar, Önnu Lindh, í liðinni viku en öllum hefur verið sleppt á ný, að sögn fréttavefjar blaðsins Dagens Nyheter í gær.
Meira


Erlent| 15.9.2003 | 20:06
Engar raunhæfar upplýsingar hafa borist um manninn á myndunum
Þrátt fyrir að myndir af manni, sem talinn er hafa myrt Önnu Lindh utanríkisráðherra Svíþjóðar, hafi nú birst í öllum fjölmiðlum í Svíþjóð og Evrópu er lögreglan engu nær um hver maðurinn er. Lögregla segir að enn hafi engar raunhæfar ábendingar borist og leggur gífurlega áherslu á að almenningur veiti allar upplýsingar sem hann kunni að búa yfir. „Það er gífurlega mikilvægt að fólk haldi áfram að hringja til okkar með ábendingar ef það veit eitthvað," sagði Carin Götblad lögreglustjóri á blaðamannafundi í kvöld þar sem símanúmer upplýsingasíma lögreglunnar var áberandi á veggjum og borðum.
Meira


Erlent| 15.9.2003 | 12:43
Norsk lögregla fær sendar myndir af grunuðum morðingja
Lögregla í Svíþjóð sendi norskum starfsbræðrum sínum í gærkvöldi mynd af manni sem hugsanlega er talinn hafa myrt Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svía. Um var að ræða mynd, sem tekin var þegar maðurinn var handtekinn fyrir nokkrum árum, en með fylgdu myndir sem teknar voru úr öryggismyndavél í NK verslunarmiðstöðinni í Stokkhólmi á miðvikudag, skömmu fyrir árásina á Lindh. Norska blaðið Adressavisen hefur þó eftir Arne Huuse, yfirmanni norsku lögreglunnar, að ekki hafi fylgt með nafn mannsins eða aðrar upplýsingar og hefur lögreglan í Svíþjóð verið beðin um að veita þær.
Meira


Erlent| 15.9.2003 | 08:01
Telja sig þekkja manninn á myndunum
Lögregla í Stokkhólmi leitaði í nótt að manni, sem kunnur er að því að bera á sér og beita hnífi, en talið er að hann sé maðurinn sem sést á myndum úr eftirlitsmyndavélum sem lögreglan hefur dreift. Fram kemur á fréttavef Aftonbladet, að um sé að ræða mann um þrítugt sem búið hafi lengi í Stokkhólmi. Hann hafi verið fyrst handtekinn undir lok 9. áratugar síðustu aldar fyrir að ógna fólki með hnífi. Síðar hafi hann fengið dóm fyrir smáglæpi en á síðustu árum hafi lögregla hins vegar ekkert haft af honum að segja.
Meira


Erlent| 14.9.2003 | 14:19
Myndum af meintum morðingja dreift til lögreglu í Evrópu
Lögregla í Svíþjóð hefur dreift myndum af manni, sem talinn er hafa myrt Önnu Lindh utanríkisráðherra, til lögregluembætta um alla Evrópu. Einnig hefur alþjóðalögreglunni Interpol verið gert viðvart. Lögreglan telur líklegast að maðurinn sé enn í Stokkhólmi eða nágrenninu en útilokar þó ekki að maðurinn hafi yfirgefið landið. Ekki er búið að bera kennsl á manninn, en lögregla segist vera að leita að um tug manna í tengslum við rannsóknina.
Meira


Thursday, September 18, 2003

blabla

This page is powered by Blogger. Isn't yours?